ÓHÁÐ SKÖPUN · REYKJAVÍKBIX × MARÍA G.

AMBAÐA

Þar sem innsæi, sýn, tónlist og tækni
opna nýjar víddir

INN Í TÓNLISTINA

Tónlist

AMBAÐAAllir litir lífsins
0:000:00

AMBAÐA

Allir litir lífsins

HLUSTA Á SPOTIFY ↗
    AETHER / ECHO með regnbogalitum á kinnum
    ALLIR LITIR LÍFSINS ECHOES

    RÖDDIN · PERSÓNAN

    AETHER / ECHO

    Persónan á bak við röddina á Allir litir lífsins. Tenging milli tónlistarinnar og kvikmyndaheims Bergmáls.

    TÓNLISTARMYNDBAND · VÆNTANLEGT

    Mín Upplifun

    Myndbandið verður frumsýnt hér á vefnum.

    HLUSTA Á LAGIÐ
    ECHOES / BERGMÁL

    02 / KVIKMYND Í ÞRÓUN

    ECHOES / BERGMÁL

    Bergrún og Echo speglast í regnblautum glugga
    Bergrún og skólasystir hennar í kennslustofu
    BERGRÚN / 01
    Bergrún hlustar á vínyl við glugga í Reykjavík
    BERGRÚN / 02

    01 / BERGRÚN

    Hún finnur rödd
    í tónlist.

    Echo við regnblautt hús og íslenskan fjörð

    02 / ECHO · 2055

    Tuttugu og tveimur
    árum síðar.

    Echo snertir spegilmynd sína á regnblautu gleri

    03 / SJÁLFRÆÐI

    Hver ræður því
    hvað við finnum?

    ÍSLAND · 2033 → 2055UM MYNDINA

    FRUMVERK FRÁ AMBAÐA

    Sumt í okkur
    þagnar aldrei.

    Bergrún er mállaus frá fæðingu en heyrir. Hún tjáir sig með íslensku táknmáli og tónlist, og óvenjunæm heyrn opnar henni heim sem aðrir taka ekki eftir.

    Listaverk hennar, EGÓDEATH, vekur athygli prófessors sem býður henni að taka þátt í þróun skammtatölvunnar Yggdrasils. Þar mætast hljóð, ljós og mannleg skynjun. Þegar svar berst úr annarri vídd er það Bergrún sem heyrir það fyrst.

    Tuttugu og tveimur árum síðar vaknar hún sem Echo. Heimurinn hefur haldið áfram án hennar. Í leit að lífinu sem hún missti fer hún að efast um friðinn sem allir aðrir virðast sætta sig við. Hver ræður nú því hvað fólk finnur?

    ÍSLENSK VÍSINDASKÁLDSAGA · HANDRIT Í ÞRÓUN

    KVIKMYND · HLJÓÐ · MEÐVITUNDBIX × MARÍA G. AMBAÐA
    KÓPAVOGUR · ÍSLAND
    Grand Sauna í Sky Lagoon, með stórum glugga út að hafinu

    HLJÓÐ × RÝMI × SJÓNDEILDARHRINGUR

    SKY LAGOON

    HLJÓÐ · LJÓS · NÆRVERA

    HLJÓÐHEIMUR EFTIR BIX

    Hafið fyrir framan þig.
    Hljóðið allt um kring.

    Hljóðhönnun fyrir Grand Sauna í Sky Lagoon. Hljóð, rými og útsýni mætast við sjóndeildarhringinn.

    SAUNA 02 / BASS DRONE

    01 / GRAND SAUNA

    Hljóðhönnun

    02 / NÝR HLJÓÐHEIMUR

    Í vinnslu

    03 / PRISMAVEGGUR

    Framundan

    03 / FYRRI VERK

    HELLISHEIÐARVIRKJUN · ON

    Agndofa

    Fjölskynjunarinnsetning eftir Bix Sigurðsson.
    Í sýningu samfellt í sex ár.

    MYNDLISTTÓNLISTHLJÓÐHÖNNUN RÝMISILMURSKYNJUN

    Í fjölskynjunarinnsetningunni eru skynfæri áhorfandans virkjuð með myndbandsverki, draumkenndum tónum og ilmi náttúrunnar.

    Þar leitast listamaðurinn Bix Sigurðsson við að miðla ógnarkrafti og ægifegurð jarðhitasvæðis Hellisheiðar.

    Tilgangur verksins er afhjúpaður í spennuþrunginni aðdáun og skilyrðislausri virðingu fyrir orku náttúrunnar. Upplifunin er á sama tíma náttúruleg og yfirnáttúruleg og skilur áhorfandann eftir agndofa.

    04 / SAGAN OKKAR

    TVÆR MANNESKJUR. OPIN SÝN.
    Bix og María Guðvarðardóttir í myndheimi AMBAÐA
    BIX × MARÍA GUÐVARÐARDÓTTIRAMBAÐA

    Sköpun er
    tenging.

    AMBAÐA er samstarf Bix Sigurðssonar og Maríu Guðvarðardóttur. Sameiginlegt upplifunarrými fyrir tónlist, list og spurningarnar sem halda okkur vakandi.

    Svörin sem hjálpa okkur að tengjast og vaxa. Ljósið sem brýst fram úr sálum okkar.

    Við vinnum þar sem hljóð, mynd, frásögn og upplifun verða eitt. Forvitnin leiðir okkur áfram: Hvað gerist þegar við hlustum dýpra? Hvernig breytist sköpun þegar nýtt hljóðfæri kemur til sögunnar?

    Aftengja apann, slökkva á suðinu í egóinu.

    Við erum öll allt.

    05 / NÆSTU HEIMAR

    Í ÞRÓUN

    Það sem
    er að verða.

    Nýjar hugmyndir taka á sig mynd.
    Ferðalagið heldur áfram.

    01

    HLJÓÐ × RÝMI × LJÓS

    Inni í hljóðinu

    Upplifanir þar sem tónlist, ljós og rými verða eitt. Tilraunir með nærveru, skynjun og tengingu.

    TILRAUNIR
    02

    HLJÓÐ × ÚTHLJÓÐ × EFNI

    Hljóð og efni

    Rannsóknarvinna á áhrifum hljóðs og úthljóðs á efni í vökvum. Við skoðum samspil tíðni, titrings og efnatengja og leitum að nýjum leiðum til að skilja það sem gerist á mörkum hljóðs og efnis.

    RANNSÓKN
    03

    MANNLEG SKÖPUN × AI

    Opið ferli

    Áframhaldandi rannsókn á skapandi samstarfi við gervigreind. Ný tónlist, nýjar aðferðir og lærdómur úr ferlinu.

    Í VINNSLU

    06 / TENGING

    FRÁ REYKJAVÍK. ÚT Í HEIM.

    Stilltu þig á
    okkar tíðni.

    Hugmynd, samstarf eða bara góð spurning.
    Við viljum heyra frá þér.

    ambada@ambada.world

    AMBAÐA THEREMIN

    Þín tíðni.

    110 – 880 Hz

    Haltu inni og hreyfðu: vinstri / hægri breytir tónhæð, upp / niður breytir styrk.